17 veigamiklar ástæður hrunsins og helstu ábyrgðamenn

 Greinin er aðeins lengri útgáfa greinar sem ég skrifaði í lok apríl 2010 og bíður enn birtingar hjá Fréttablaðinu þann 17.mai, enda talsverður biðtími vegna innsendra greina.

Rannsóknarskýrslan nýútkomna var mjög góð kortlagning á viðskipta- og stjórnmálaumhverfi liðinna ára. Hér verða taldar til margar ástæður hrunsins, margar með innbyrðis tengsl.

1. Mannauður og mannval 

Mannaráðningar hafa í gegnum tíðina oft verið B ráðningar. Þar sem fólk er ráðið á grundvelli af tengslum ættar eða vináttu viðkomandi í stað hæfis. Oft á kostnað fagmenntunar tilheyrandi starfa og getur átt við allt frá stöðuveitingum í opinberum fyrirtækjum til dómskerfis. Gott dæmi er að fjármálaráðherra Íslands var dýralæknir!, ber þó mikla virðingu fyrir þeirri stétt
2. Eftirlit og eftirlitsstofnanir

Skortur hefur verið á nægjanlega öflugu Fjármálaeftirliti, samkeppnis- og skattaeftirliti. Jafnframt vantar eðlilegar reglur og ramma sem stuðla að heilbrigðara viðskiptalífi og varna kennitöluflakki og þvíumlíku.
3. Byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í

Í þjóðareðlinu og meðal ráðamanna er tilhneiging til að byrgja brunninn þegar hann er tekinn að fyllast af börnum. Aðgerðir oft eftirábyggjandi í stað fyrirbyggjandi.
Reynsla mín eftir nám, rannsóknir og störf á Norðurlöndunum er að aðgerðir eru mun meira fyrirbyggjandi.
4. Eigendur, bankastjórar og stjórnir bankanna eru ábyrgir
Eigendur banka létu bankana lána fyrirtækjum sínum gríðarlegar upphæðir. Þannig voru lán til ákveðinna fyrirtækjablokka jafnvel yfir 50% af eiginfjárgrunni ákveðins banka. Reglur peningamarkaðssjóða voru margbrotnar.
5. Ákveðnir lögfræðingar og endurskoðendur eru ábyrgir

Þeir sem gengu erinda eigenda banka og stórfyrirtækja.

6. Aðferðafræði við yfirtöku ríkisins á Glitnir banka

Margt var ábótavant, einkum fagmennska, og keðjuverkun átti sér stað. Þó sýnir skýrslan að bönkunum yrði alls ekki bjargað á þessum tímapunkti.
7. Stjórnmálamenn brugðust
Stjórnmálamenn eiga að setja heilbrigðar leikreglur fyrir samfélagið og sjá til þess að til staðar sé stjórnsýsla fyrir góða framkvæmd þeirra. Ljóst er að þeir brugðust, og þarf að taka upp betri aðferðafræði hjá þeim.
Auk þess í huga höfundar efi um að ákveðnir þingmenn hafi gert alveg hreint fyrir sínum dyrum. Vafalaust verður slíkt skoðað betur.
8. Hamfarir og fjármálakreppa sem riðu yfir alþjóða hagkerfið einkum haustið 2008
Bankakerfið í okkar litla og opna hagkerfi, með veikum gjaldmiðli, var gríðarlega stórt hlutfall af landsframleiðslu eða um 12,5 sinnum.
Gjaldmiðillinn var, og er mjög veikur og minnsti sjálfstæði gjaldmiðill í heimi. Slíkt er ekki ávísun á stöðugleika.  Þegar fjármálakreppan reið yfir var það berskjaldað.
9. Ekki hlustað á trúverðuga erlenda sérfræðinga

Góðar greiningar þeirra voru rakkaðar niður af stjórnmálamönnum sem og fjölmiðlum, sem meðal annars voru í eigu eigenda bankanna.
10. Fjölmiðlafrumvarpið

Það verður að segjast að Davíð Oddsson hafði rétt fyrir sér varðandi ákveðna þætti fjölmiðlafrumvarpsins, þó annað hafi verið gallað. Eignarhald ákveðinna aðila á fjölmiðlum er ein af ástæðum andvaraleysis þeirra. Þeir gátu haft mikil áhrif á almenningsálitið og sveigt það að sér.

11. Menntun og fjármálalæsi ábótavant

A
lmenningur var oft auðvelt fórnarlamb fjármálastofnanna þegar kom að óskynsamlegum lántökum. Margt fólk ruglar saman hugtökum eins og t.d. nafnvöxtum og raunvöxtum og áttar sig ekki á gengisáhættu. Kosningaslagorð og aðgerðir um 90% lán, hjá þjóð sem lengi hefur búið við vaxtaokur, er stór orsakavaldur hér.   
12. Tímaleysi og áróður
Fólki var talin trú um að Íslendingar væru svo afskaplega ríkir! Höfundur skrifaði grein um þá hagfræðilegu blekkingu í Morgunblaðinu árið 2006 undir nafninu “Íslendingar sjötta ríkasta þjóð í heimi”. Þar  kemur fram að mikil vinna og vinnuframlag hefur hér mest að segja og þar með fjarveru frá fjölskyldum með tilheyrandi félagslegum kostnaði. Þetta mun því miður aukast
13. Skortur á ákveðnu viðskiptasiðferði og skattfræði
Gráa svæðið var stórt, menn komust upp með ótrúlega hluti í viðskiptaumhverfinu. Hluti almennings virtist og virðist einnig ekki gera sér grein fyrir til hvers það er að greiða skatta.
14. Hagstjórn ábótavant, einkum frá árinu 2000 auk veikrar stjórnsýslu

Þensluhvetjandi aðgerðir, skortur á aðhaldi í ríkisfjármálum og ýmis hagfræðileg lögmál í raun brotin. Að mörgu leyti var um að ræða gervihagvöxt keyrðan upp með lántökum.
15. Sala Landsbankans og Búnaðarbankans

Aðferðafræði sem beitt var og hverjir voru handvaldir sem kaupendur. Forkastanlega vinnubrögð sem meðal annars urðu til þess að formaður einkavæðingarnefndar sagði upp stöðu sinni með orðunum „Aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum„. Enn frekar að söluverðið var meðal annars í formi láns frá hinum bankanum! „  Höfundur var þó ekki á móti sölu ríkisbanka.

16. Þjóðhagsstofnun var lögð niður
Um var að ræða hlutlausan greiningaraðila. Í staðinn tóku greiningardeildir bankanna við spám!
17. Gjafakvótakerfið
Aðferðafræði og framkvæmdin. Höfundur er þó ekki á móti kvóta á aðgengi að fiskimiðum, enda málið skyllt þar sem fjöldi útgerðamanna er í ættbálki mínum við nyrsta odda landsins.

Höfundur leyfir sér að vera bjartsýnn fyrir hönd hins nýja Íslands, enda býr mikill kraftur og áræði í þjóðinni.  Þó er þörf á langtímastefnumótun, fyrirbyggjandi aðgerðum og öguðum vinnubrögðum. Auk þess siðfræðikennslu, minnkun efnishyggju, beitingu réttrar aðferðafræði og innrætingu ábyrgðakenndar – sér í lagi hjá karlmönnum. Þá er mikilvægt að grunnþekking fjármála og hagfræði sé hluti af  námi bæði  í grunnskólum og framhaldsskólum. Fjöldi fólks og fjölskyldna á um sárt höfuð að binda sökum atriða hér talin upp í greininni. Höfundi er mikið í mun að þeir útrásargemlingar og aðrir sem tekið hafa peninga frá þjóðinni greiði sem allra mest til baka. Það kýs ég enn frekar en að þeir sitji í lengri tíma á kostnað skattgreiðenda á hvíldarheimilum svo sem Kvíabryggju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Ég gæti ekki verið meira sammála öllu hér hér að ofan. Að vísu finnst mér vanta ábendingar um spillingu og fé-án-hirðis fólkið. Til að mynda eru stóru lífeyrissjóðunum stjórnað af "ósýnilegum" hópi sem þarf ekki ekki bera ábyrgð á einu eða neinu. Þetta á við um marga aðra sjóði.

Sumarliði Einar Daðason, 16.6.2010 kl. 12:02

2 identicon

Hákon á Alþingi vöntun á mönnum sem skilja vandann og hafa umbótalöngun í sér!!!

Birgir Breiðdal (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband